Saturday, October 08, 2005

Hibyli Vindanna

Jæja ég stóð við að ég ætla að fara meir í leikhús þennann vetur og skellti mér í gærkveldi á verk í borgarleikhúsinu sem heitir Híbýli vindanna. Ég skemmti mér ágætlega yfir raunasögum íslenskra vesturfara en fann satt að segja ekkert allt of mikið til með sögunni og persónunum. Fannst þær of einslitnar og vanta allann kraft einhvernveginn. Svo var vonleysið og vosbúðin einum of. Þetta virðist fylgja dálítið islenskum bókmenntum, allir eiga svo rosalega bágt og þó ég sé ekki endilega að biðja um "happy ending" eða neitt slíkt þá er ég bara nokkuð sammála Tensai minni að það vantar einhverja von í verkin og persónurnar. Mér fannst leikarahópurinn dálítið einsleitur líka, það var helst Halldóra Geirharðs sem stóð uppúr enda hennar persóna mun skemmtilegri en flestra aðra. En samt liðu þessir 3 tímar í leikhúsinu mjög hratt og ég hafði gaman af hvernig stykkið var sett upp og allar þessar skemmtilegu ódýru lausnir á sviðmyndinni var hrein snilld! Ég fer oftar í leikhús í vetur alveg pottþétt og er orðinn mjög spenntur fyrir Woyzek.
En þegar ég kom heim í gærkveldi sátu þær Tensai og Forskaren heima og hafði Forskaren drukkið helst til mikið spur og var að spila Enrico Íglasi á fullu mér til mikillar skelfingar, svo kom hún alltaf reglulega til mín og sagði c'mon þér finnst hann æðislegur! SURE! Held það þurfi ansi marga lítra af spur til að sannfæra mig um það!

11 comments:

Anonymous said...

Þið á þessu heimili þurfið hver sinn headphone!!!

Anonymous said...

Og annað talandi um leikhús... rosalega langar mig að sjá "sjálfs mín kona" nema bara hvernig í helv... á ég að sannfæra mannin minn um að koma með?????

Kiddi rokk said...

Sjálfs mín kona er víst alveg frábært leikrit og Hilmir Snær fer víst algerlega á kostum. Það er á "to do" listanum mínum engin spurning!

Anonymous said...

Trúðu mér mín kæra Selkona, við EIGUM öll hver sín headphone. Ég á fjögur til að vera viss um að vera hvergi í lífshættu á heimilinu eða utan þess.
Forska fannst svo gaman að dansa við Enríg að hún sullaði spurinu sínu útum allt og meira segja á fína nýja súper mega 2000 brellusófann. Ég varð svo miður mín að ég fékk mér bara sake. Hammer kom svo heim og sprakk úr hneykslun á Enríg og varð skelfingu lostinn um orðspor sitt í húsinu; að frá íbúðinni hans skyldi heyrast spænsk kellingatónlist. Rokkarinn er núna í stífri áfallahjálp og hlustar á Wig Wam og Nitro á volume 10... úff upp með headphoninn eina ferðina enn...

Anonymous said...

Ps. Hver er Selkonan dularfulla???

Anonymous said...

Ég get upplýst Hammer um það að ég bjargaði honum frá að þurfa að hlusta líka á Michael Bolton og Kenny G með því að forða Forska frá því að skella í sig rauðvínsflösku númer tvö í gærkvöldi. Þá hefði ekki dugað minna en Manowar í viku til að laga reppið nema aþ Hammer sé orðinn það menningarlegur að hannskelli á fóninn sinfóníu í abc dúr fyrir falskt píanó, 12 strengja fiðlu og olíutunnu eftir Atla Heimi. Þá er ég hrædd um að Tensai san veiti ekkert af öllum sínum fjórum hedfónum

Anonymous said...

Sko, maður má nú bara orðið ekki bregða sér í betir skóna án þess að allur bærinn viti af öllu. ég held að ég fari bara næst beint niður í herbergið mitt og hlusti á hann Enríki minn og drekki mína flösku ein......hljómar vel....

Anonymous said...

Æi nei Forski, ekki gera það :( Hvað eigum við hin þá að commenta um? Og svo myndi ég sakna þín svo voðalega. All is forgiven, þú mátt alveg tralla eins mikið um stofuna og þú vilt :)

Anonymous said...

Ég held að maður skelli sér kannski bara í heimsókn til Hammers og tensai san bráðlega og bergi sófann og öll þessi headphone augum. Fenguð þið ekki örugglega magnafslátt af headphones?

von grumpenhofen said...

Þegar Tensai San labbar fram hjá Applebúðinni er lagður rauður dregill og besta koníakið tekið fram

von grumpenhofen said...

Hvernig er það, fauk Hammerinn á haf út í öllum þessum vindi þarna í leikhúsinu? Er ekki kominn tími til að setjast við tölvuna og skrifa nokkrar línur?